Breska ríkisútvarpið fjallar um skemmtilega ferð tveggja fótboltaáhugamanna sem flugu frá Skotlandi í lítilli skrúfuflugvél yfir Atlantshafið til að fylgjast með skoska landsliðinu á HM. David Smith og Fraser MacIntyre, formaður og varaformaður skoska B-deildarfélagsins Ayr United, flugu í 22 klukkustundir frá Skotlandi til Boston. Á leið sinni millilentu þeir í Reykjavík, Grænlandi og Kanada. Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndskeið um ferðalag þeirra.