Þriðja verslun SPAR verður opnuð í Hófgerði í Kópavogi á morgun, laugardag kl. 12, en Samkaup hafa rekið Krambúð í húsnæðinu um árabil. Tvær SPAR verslanir voru opnaðar í byrjun júní, á Barónsstíg og Staðarbergi, og sú fjórða verður síðan opnuð í Búðakór í Kópavogi í byrjun júlí. Báðar verslanirnar í Kópavoginum verða opnar 7.30 til 23.30 alla daga vikunnar á meðan Staðarbergið og Barónsstígurinn verða opnar allan sólarhringinn.