Gæsluvarðhald framlengt yfir fimm í tengslum við fíkniefnasmygl með Norrænu

Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum hefur verið framlengt til 9. júlí. Mennirnir voru handteknir í lok maí grunaðir um innflutning á talsverðu magni af kókaíni og amfetamíni með Norrænu.Mennirnir voru handteknir í Reykjavík og Hveragerði. Tveir þeirra eru Íslendingar og þrír erlendir ríkisborgarar.Rannsókn málsins hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar.
Gæsluvarðhald framlengt yfir fimm í tengslum við fíkniefnasmygl með Norrænu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd