Reykjavíkurborg frestar fyrirhugaðri enduropnun Sundhallar Reykjavíkur um nokkra daga. Viðhaldsvinna hefur staðið yfir síðustu vikur sem átti að ljúka um helgina og átti að opna laugina á mánudag. Í tilkynningu segir að vegna „ófyrirséðra atriða“ verði ekki hægt að opna á mánudag.