Íslensku söngkonunni Laufeyju bregður fyrir í nýjasta þætti Simpsons-fjölskyldunnar (The Simpsons), tvöfalda þættinum The Extreme Makover: Homer Edition. Það er viðeigandi að þátturinn var frumsýndur á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga, 17. júní.Það er rík hefð fyrir því að frægir fari með gestahlutverk í Simpsons og dæmin eiginlega svo mörg að það tekur því ekki að þylja einhver upp. Stundum eru frægir í hlutverkum annarra persóna en eflaust er algengara að þeir leiki útgáfu af sjálfum sér, líkt og Laufey. Leikarinn Jon Hamm fer einmitt líka með gestahlutverk sem hann sjálfur í nýjasta þættinum. „SKEMMTILEGT LAG Á KALDHÆÐINN MÁTA“ The Extreme Makeover: Homer Edition er eins konar skopstæling á Jókermyndum Todd Phillips. Tónlist er afar fyrirferðarmikil í þeim kvikmyndum og sérstaklega þe