„Starfi Bríetar, og annarra eldhuga í baráttu fyrir betra samfélagi, er aldrei lokið. Við minnumst krafta, hugrekkis og framsýni Bríetar og höldum um leið baráttu fyrir jafnrétti og góðu samfélagi áfram.“Þetta sagði Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar í ávarpi sínu við minningarathöfn um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur fyrr í dag.Kvenréttindadagurinn er í dag og að venju var Bríetar minnst í Hólavallagarði. Blómsveigur var lagður að leiði hennar og auk ávarps Bjargar voru flutt tónlistaratriði.Auður Önnu- Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands, segir daginn enn hafa mikið vægi. Mikilvægt sé að muna að réttindi, eins og kosningaréttur kvenna, séu ekki sjálfsögð.„Það þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna þau inn. Við þurfum að vera í aktífri vinnu til þess að viðhalda þeim