Það stendur mikið til á Þingvöllum á morgun, laugardaginn 20. júní þegar tónlistarhátíðin Bergmál fer fram en hljómsveitin Kaleo verður þar í aðalhlutverki. Reiknað er með um 20 þúsund gestum á staðinn. Mikil löggæsla verður á Þingvöllum en Grímur Hergeirsson er lögreglustjóri á Suðurlandi en Þingvellir tilheyra embættinu hans.„Við erum með mikinn fjölda og mjög mikla löggæslu í kringum þetta, bæði í umferðarlöggæslu og annarri gæslu á svæðinu,” segir Grímur.Verður þetta einhver þjóðvegahátíð eða?„Það ætla ég að vona ekki. Skipulagið er að við teljum gott en fólk getur alveg þurft að sýna þolinmæði á köflum. Það má alveg gera ráð fyrir því eins og reyndar alla daga orðið á Íslandi í umferðinni,” segir Grímur.En hvað verða margir lögreglumenn við störf á Þingvöllum?„Það verða eitthvað í kri