Núna á dögunum var því velt upp í pistli hér á Fótbolta.net hvernig landslið Íslands gæti litið út á HM 2030, ef við komumst þangað. Möguleikarnir í framlínu framtíðarinnar eru spennandi, sérstaklega ef við spilum með tvo frammi eins og við höfum oft gert.