Afdráttarlausum stuðningi við Úkraínu var lýst yfir á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem nú stendur í Brussel. Leiðtogar aðildarríkjanna eru þó ekki sammála um mögulegar friðarviðræður við stjórnvöld í Rússlandi - og hver ætti að vera þar í forsvari.Í stóra samhenginu snýst þetta um hvaða stöðu Evrópusambandið ætlar að taka, þegar og ef kemur að einhvers konar friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna; leiðtogar Evrópuríkja og Evrópusambandsins hafa ítrekað lýst því yfir að fulltrúi, eða fulltrúar þeirra, ættu að vera við slíkt samningaborð ásamt fulltrúum Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu.Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, Antonio Costa, steig svo inn í þessa umræðu, þegar í ljós kom fyrir nokkrum dögum að hann hefði beðið embættismann á skrifstofu sinni að „opna á talsamband“ við stjó