Komið frábærlega inn við erfiðar aðstæður

Aron Snær Friðriksson hefur varið mark Víkings í fjarveru Ingvars Jónssonar sem glímir við krabbamein. Aron hefur alls leikið sjö leiki í Bestu deildinni, þar af einn hálfleik, og aðeins fengið á sig tvö mörk. Þrátt fyrir að hafa ekki spilað alla leiki deildarinnar er hann sá markmaður sem hefur haldið oftast hreinu, alls fjögur skipti, en ásamt því er hann með hæsta vörsluhlutfallið í deildinni. Af þeim skotum á markið sem Víkingur fær á sig ver Aron 86% þeirra, næsti markvörður þar á eftir er Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, með rúmlega 69% vörsluhlutfall.
Komið frábærlega inn við erfiðar aðstæður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd