Síðasta föstudagskvöld var greint frá því að Jökull Elísabetarson hefði verið látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar eftir um þrjú ár sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. Í tilkynningu Stjörnunnar var sagt frá því að stjórn hefði gert samkomulag við Jökul um starfsok. Gengi liðsins hafði ekki verið gott fyrstu vikur og mánuði Íslansmótsins, einungis þrír sigrar í deildinni, og tveimur dögum fyrir tíðindin hafði Stjarnan tapað gegn Lengjudeildarliði Aftureldingar.