Lögmaður mótmælanda segist ekki viss um að það standist lög að Hvalur hafi skráð hann sem farþega til þess að geta siglt. Hólmsteinn Harðarson kom sér fyrir í tunnu í mastri skipsins í gær til að mótmæla hvalveiðum. Á fimmta tímanum sigldi skipið úr höfn með Hólmstein um borð.Katrín Oddsdóttir, lögmaður Hólmsteins, efast um að áhöfn skipsins hafi hugsað til enda ákvörðun um að villa um fyrir honum og skrá hann sem farþega. Áður en lagt var af stað hafi hann ítrekað að hann vildi ekki vera farþegi á skipinu. > Það að sigla svona af stað án þess að vera búin að hugsa út hvaða áhrif þú getur haft á aðra manneskju með því að gera svona, t.d. hvort hann sé viðkvæmur einstaklingur eða annað. Það er mjög stór ákvörðun. Það sé eflaust óþægilegt fyrir Hval að aðgerðasinnar stöðvi siglingar ítreka