Assim Madibo, leikmaður Katar, var rekinn af velli í leiknum gegn Kanada á HM í fótbolta í gær eftir brot sem olli því að Ismael Kone fótbrotnaði. Madibo var í öngum sínum eftir brotið og kom inn í búningsklefa Kanada eftir leik til að biðjast afsökunar.