„Ég fékk bara pöntun, mér skilst að þetta hafi verið þannig mikið til að það hafi verið ljóðskáld og svo fjallkonan sem koma að þessu, þó ekki sömu manneskjur,“ segir Bragi Valdimar Skúlason, auglýsingafrömuður, Baggalútur, íslenskufræðingur og skáld, titlarnir hér hafðir í stafrófsröð þar sem óljóst er um erfðaröð þeirra að margslunginni krúnu Braga.