Ökumaður fólksbifreiðar sem lenti í árekstri á Hálsasveitarvegi, rétt norðan við Reykholt í Borgarfirði, á þriðjudag er látinn.Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman. Ökumenn beggja bíla og farþegi í öðrum þeirra voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Annar ökumaðurinn lést þar.Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið. Áreksturinn var harður og þurfti að klippa tvo út úr bílunum. Áreksturinn varð síðdegis á þriðjudag.