Ökumaður lét lífið í alvarlegu umferðarslysi á Hálsasveitarvegi rétt norðan við Reykholt á þriðjudaginn, 16. júní. Frá þessu greinir Lögreglan á Vesturlandi í tilkynningu. Slysið átti sér stað þegar tvær fólksbifreiðar lentu saman, en þeim hafði verið ekið hvorri úr sinni áttinni. Ökumenn og farþegi voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar lést. Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins.