Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði í gær reglugerð sem eykur strandveiðikvótann úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Strandveiðimenn mega því veiða 2.700 tonnum meira en áður hafði verið ákveðið.Strandveiðar hófust í byrjun maí og þóttu almennt fara vel af stað og veiddist meira í byrjun en á sama tíma í fyrra. Formaður Landssambands smábátaeigenda lýsti þá áhyggjum af því að ekki yrði hægt að veiða í 48 daga ef ekki kæmi til lagabreyting.RUV / Víðir Hólm Ólafsson