Inga ræddi við fulltrúa TikTok um aldursmörk fyrir notendur

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ræddi í gær við fulltrúa TikTok um hugmyndir þess efnis að hækka aldurstakmörk fyrir samfélagsmiðlanotkun barna. Kjartan Sverdrup, stjórnandi samskipta við stjórnvöld og stefnumótunar hjá TikTok í Noregi, og Richard Collard, yfirmaður stefnumótunar í öryggismálum barna og ungmenna hjá TikTok í Evrópu, mættu á fund ráðherra.Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að samtalið sé liður í vinnu við að setja lög um aldurstakmörk fyrir notkun barna á samfélagsmiðlum. Inga og fulltrúar TikTok hafi rætt þær hættur sem börn og ungmenni standi frammi fyrir og hvernig sé hægt að verja þau fyrir neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla.Fulltrúar TikTok sögðu fyrirtækið ekki leggjast gegn hugmyndum um aldurstakmark og að það væri reiðubúið að vinna með íslenskum stjórnvöl
Inga ræddi við fulltrúa TikTok um aldursmörk fyrir notendur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd