Kona á sextugsaldri var í gær sakfelld fyrir líkamsárás og brot í nánu sambandi. Hún skapaði ógnarástand á heimili sínu síðasta sumar með því að beita dóttur sambýlismanns síns og vinkonu hennar andlegu og líkamlegu ofbeldi.Konan kastaði meðal annars síma og pizzukassa í dóttur sambýlismannsins, tók hana hálstaki og hrinti henni, ýtti eða sló til vinkonu stúlkunnar og elti þær þegar þær flýðu út. Hún mun hafa brotið rúðu í forstofuhurð og kastað stórum pizzuskera í átt að stúlkunum sem höfðu flúið út á bílaplan.Dómari við Héraðsdóm Norðurlands vestra dæmdi konuna til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar.Héraðsdómur Norðurlands vestra.RÚV / Aðsent