Blikar mæta liði með ótrúlega markatölu

Í gær var dregið í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeild kvenna og er ljóst að Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta liði WFC Aktobe frá Kasakstan í undanúrslitum umferðarinnar. WFC Aktobe er á toppi deildarinnar í Kasakstan sem stendur með fullt hús stiga í B-riðli deildarinnar eftir sjö leiki og markatöluna 76-1. Á síðasta tímabili tapaði liðið einungis fjórum stigum í 26 leikjum og endaði með markatölun 225-5. Sigri Breiðablik leikinn gegn Aktobe þá bíður sigurvegarinn úr leik Dinamo-BSUPC frá Belarús og Servette frá Sviss. Sigurvegarinn úr þeim leik fer svo áfram í þriðju umferð Meistaradeildarinnar.
Blikar mæta liði með ótrúlega markatölu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd