Grillsumarið er fram undan og landsmenn farnir að huga að því hvað fer á grillið á komandi vikum. Þó að margir eigi sína föstu uppáhaldsrétti sem rata á grillið ár eftir ár hefur áhugi á nýjum bragðupplifunum aukist jafnt og þétt. Í dag vilja neytendur gjarnan blanda saman klassískum grillréttum og nýjum spennandi bragðsamsetningum sem sækja innblástur víða að úr heiminum.