Landsréttur staðfesti í gær þriggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Bartosz Milbrandt fyrir nauðgun og brot í nánu sambandi. Einn þriggja dómara við Landsrétt skilaði sératkvæði og vildi sýkna Bartosz. Bartosz var gefið að sök að hafa brotið gegn sambýliskonu sinni á þáverandi heimili þeirra í Reykjavík föstudagskvöldið 26. nóvember árið 2021, inni á baðherbergi, beitt hana ólögmætri nauðung og haft án samþykkis samræði og önnur kynferðismök við konuna.