Verðbólga var 4,8 prósent á Íslandi síðustu tólf mánuði samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu var 3,3 prósent á sama tíma. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Hún birti í dag samanburð á neyslu, landsframleiðslu og verðlagi í Evrópu. Þar kemur fram að landsframleiðsla á mann var 28% meiri á Íslandi en í Evrópusambandinu á síðasta ári. Einstaklingsbundin neysla var 15% meiri á Íslandi en í Evrópusambandinu að teknu tilliti til þess hversu mikið fæst fyrir sömu upphæð í ólíkum löndum.Matur og drykkur var að jafnaði 56% dýrara á Íslandi en í Evrópusambandinu.Matur og drykkur var 56 prósent dýrari á Íslandi en í ESB í fyrra.RÚV / Ragnar Visage