Burnham vann stórsigur

Borgarstjóri Manchester, Andy Burnham, vann stórsigur í aukakosningum sem fram fóru í Makersfield-kjördæmi sem er á milli Manchester og Liverpool á Englandi í gær.Burnham tryggði sér þingsæti fyrir Verkamannaflokkinn á breska þinginu með tæplega 24.927 atkvæðum, samkvæmt breska ríkisútvarpinu. Rob Kenyon sem bauð sig fram fyrir Umbótaflokkinn og fékk 15.696 atkvæði. Hinir fjórir frambjóðendurnir voru með færri en 3.200 atkvæði hver. TILBÚINN TIL AÐ LEIÐA VERKAMANNAFLOKKINN Burnham er talinn mögulegur arftaki Keirs Starmers, forsætisráðherra Bretlands. Nokkuð hefur gustað um Starmer síðustu mánuði meðal annars vegna stöðu efnahagsmála. Þá hafa nokkrir ráðherrar úr ríkisstjórn Starmers sagt af sér undanfarið.Burnham hefur gefið það til kynna að hann sé tilbúinn að leiða Verkamannaflokkinn
Burnham vann stórsigur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd