Saksóknaraembætti í Kólumbíu greindi frá því í gær að rannsókn væri hafin á tengslum Alvaro Uribe, fyrrverandi forseta, við vopnaða hópa í valdatíð hans. Uribe var forseti 2002 til 2010 og þar áður héraðsstjóri. Sveitir vinstri sinnaðra uppreisnarmanna, hægri sinnaðir vopnaðir hópar og herinn bárust á banaspjót áratugum saman og unnu ýmis óhæfuverk. Uribe hefur alltaf neitað tengslum við slíka hópa. Bróðir hans stýrði einum þeirra.Saksóknari ætlar að rannsaka hugsanlegan þátt Uribe í að stofna vopnaða hópa þegar hann var héraðsstjóri. Hann hefur líka verið sakaður um að tengjast fjöldamorðum slíkra sveita.Alvaro Uribe.EPA / Stringer