Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir margt brýnna í skólakerfinu í dag en að setja reglur um símanotkun og að samtal nemenda og kennara um sitt umhverfi sé alltaf gáfulegra en miðstýrðar reglur sem geti skapað óþarfa vanda á milli þeirra. Samkvæmt reglugerð eigi að setja eigi upp skápa en ekki liggi fyrir hver eigi að fylgjast með þeim eða hvort að barnið skili símanum þangað.