Alþingi samþykkti í gærkvöld lög um stofnun innviðafélags sem á að fjármagna og byggja upp samgöngumannvirki. Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum stjórnarliða en stjórnarandstæðingar greiddu ekki atkvæði um frumvarpið.Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.Atkvæðagreiðslan um innviðafélagið var síðasta verkefni kvöldfundar á Alþingi í gær sem lauk rétt á ellefta tímanum. Í dag tekur svo við síðasti þingfundadagur Alþingis áður en það fer í leyfi yfir sumarið, nema eitthvað óvænt gerist.Þingfundur hefst klukkan 10:30 í dag og eru 22 mál á dagskrá. Þeirra á meðal eru nokkur þingmannamál stjórnarandstöðunnar sem v