Evrópumálaráðherrar aðildarríkja ESB eru gagnrýnir á það sem þeir kalla seinagang Íslands og annarra EES-ríkja við að taka upp og innleiða reglugerðir og tilskipanir sem snúa að málefnum innri markaðsins.Þetta kemur fram í yfirliti ráðherraráðsins yfir virkni innri markaðsins og samskipti og samvinnu Evrópusambandsins við þau ríki í vesturhluta Evrópu sem ekki eru aðildarríki.Yfirlitið var samþykkt án umræðu á fundi ráðherranna fyrr í þessari viku sem þýðir að þar kemur fram sameiginleg afstaða allra aðildarríkja ESB.Meðal ríkjanna sem gagnrýnin beinist að eru Ísland, Noregur og Lichtenstein. Í skjalinu er þó einnig fjallað um Færeyjar, Sviss, Andorra, San Marínó og Mónakó.Almennt er talað á jákvæðum nótum um samstarfið við þessi ríki, þar á meðal EES-ríkin, til dæmis samvinnu í öryggis- o