Hljóðprófanir hefjast um hádegisbilið í dag á stórsviði tónlistarhátíðarinnar Bergmáls þar sem tónlistarfólk á borð við Mugison, Stuðmenn, Hjálma, Emiliönu Torrini, KK og svo auðvitað Kaleo munu stíga á svið annað kvöld og skemmta nærri 20.000 tónleikagestum á þessum sögufræga stað í skugga hamrabeltisins við Almannagjá.