Norsk yfirvöld mótmæla ofbeldisfullri meðferð á aðgerðarsinnum

430 aðgerðarsinnar Global Sumud Flotilla voru handteknir af Ísraelsher í maí. Þeim var sleppt nokkrum dögum síðar.AP / Emrah GurelNorsk yfirvöld hafa komið mótmælum á framfæri til ísraelskra stjórnvalda vegna ofbeldisfullrar meðferðar á aðgerðarsinnum. Þeir voru handteknir af Ísraelsher um borð í bátum sem voru á leið til Gaza með hjálpargögn í maí. Norska ríkisútvarpið greinir frá.Alls voru 430 aðgerðarsinnar handteknir, þar af fjórir Norðmenn, og fluttir til Ísraels. Þar voru þeir í varðhaldi í um viku þar sem þeir máttu margir hverjir sæta ofbeldi.Nokkrir aðgerðarsinnar þurftu að leggjast inn á sjúkrahús, þar á meðal Norðmenn. Að minnsta kosti 45 aðgerðarsinnar sögðust hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi.
Norsk yfirvöld mótmæla ofbeldisfullri meðferð á aðgerðarsinnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd