Erill var á vaktinni á Akureyri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Bíladagar standa yfir og setja mark sitt á bæinn.Talsverð ölvun var í bænum og eitthvað um pústra. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu en enginn virðist vera með alvarlega áverka.Fjórir gistu fangaklefa um tíma, bæði vegna líkamsárásanna og vegna ölvunar.Frá Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson