Einangrun lokið fyrir flesta vegna hantavírus

Nær allir farþegar og áhöfn á skemmtiferðaskipinu Hondiusi sem þurftu að vera í einangrun í Hollandi vegna hantavírusar hafa nú lokið einangrun og mega fara heim til sín.Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, greindi frá þessu í færslu á X í gær. Hann sagði engan hafa látist úr hantavírusi síðan 2. maí og ástandið væri stöðugt. Alls greindust 13 einstaklingar með hantavírus og þar af létust þrír úr veirunni.Flestir farþegar skipsins og hluti áhafnarinnar á Hondiusi fór frá borði á Tenerife 10. maí. Lítil áhöfn sigldi skipinu svo áfram til Rotterdam í Hollandi þar sem það kom í höfn átta dögum síðar. HONDIUS VÆNTANLEGT TIL ÍSLANDS Hondius var sótthreinsað og þrifið í Rotterdam og fékk leyfi til að fara aftur á sjó í lok maí. Hondius siglir um Svalb
Einangrun lokið fyrir flesta vegna hantavírus

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd