Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti.EPA / Robin van LonkhuijsenVolodymyr Zelensky Úkraínuforseti vill hitta Vladimir Pútín Rússlandsforseta við samningaborðið fyrir komandi vetur.Zelensky skrifaði þetta í færslu sem hann birti á Telegram og norska ríkisútvarpið greindi frá. Zelensky bætti við í færslu sinni að Úkraínumenn viti við hvern þeir séu að eiga, Pútín vilji stríð.Ef stríðið heldur áfram þurfa Úkraínumenn neyðarpakka fyrir veturinn. Þörf sé á aðstoð með eldsneyti, dísil, rafmagnsbúnað og fleiri flugskeyti. Úkraínuforseti segir að herinn þurfi að minnsta kosti 300 flugskeyti fyrir vetrarmánuðina.