Mikill stjörnufans var á opnunarhátíð safns tileinkað forsetatíð Baracks Obama í Chicago í dag. Allir núlifandi fyrrum forsetar Bandaríkjanna sóttu viðburðinn og stjörnur á borð við Christinu Aguilera, Stevie Wonder, John Legend og Jennifer Hudson komu fram. Núverandi forseti, Donald Trump, var ekki á boðslistanum.