„Hún gekk í gegnum hreinasta helvíti,“ segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir sem hefur stofnað stuðningshóp fyrir aðstandendur ungmenna sem eru fórnarlömb alþjóðlega glæpahópsins 764. Dóttir Katrínar er ein þeirra.Katrín segir erfitt að finna fórnarlömb hópsins.„Markmiðið mitt er að vekja athygli á þessu ofbeldi sem tíðkast þarna á netinu og finna hvort það séu fleiri fórnarlömb hérna á Íslandi. Þannig að við getum hjálpað líka með jafningjastuðningi,“ segir Katrín.Hún segist ekki hafa fengið mikil viðbrögð við hópnum, þó að nokkrir sem hafi ekki tengingar við fórnarlömb hafi óskað eftir því að fá inngöngu í hópinn. „Það er þá meira fólk sem vill forvitnast út á hvað þetta gengur,“ segir Katrín. Þær séu tvær sem eigi börn sem séu þekkt fórnarlömb á Íslandi.„Í draumaheimi fáum við engin vi