Fjölbreytt skemmtun á Akureyri um helgina

Fjölmargir og fjölbreyttir viðburðir eru á dagskrá í Eyjafirði um helgina.Fyrst ber að nefna Bíladaga, sem hófust 17. júní með glæsilegri bílasýningu í Boganum. Í dag hélt dagskrá hátíðarinnar áfram með driftkeppni og í kvöld verður bílalimbó og vegasalt á svæði félagsins. Hátíðin nær síðan hámarki á laugardagskvöldið þegar hin margrómaða burn-out keppni fer fram.Hinsegin hátíð Norðurlands eystra hófst í dag með regnbogasundi á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og lifandi bókakaffi á bókasafni sveitarfélagsins. Hápunktur hátíðarinnar er síðan á laugardaginn þegar gleðiganga verður í Hrísey.Grímseyingar halda upp á sólstöðuhátíð alla helgina, í tilefni af sumarsólstöðum. Hátíðin er árleg og gjarnan vel sótt, sérstaklega af erlendum ferðamönnum.Þá hófst eitt stærsta golfmót sumarsins á Jaðarsvel
Fjölbreytt skemmtun á Akureyri um helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd