Hjónin Tyrfingur Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir stunda svokallaðan auðgandi landbúnað á Tyrfingsstöðum í Ásahreppi á Suðurlandi.„Á hverjum degi búum við til ný hólf fyrir kýrnar,“ segir Tyrfingur Sveinsson bóndi.Auðgandi landbúnaður snýst um að bæta jarðveginn með skipulagðri beitarstýringu. Kastljós kíkti í heimsókn til hjónanna.„Það verður mikið traðk og stíf beit á landinu í stuttan tíma, í sólarhring, þær taka niður allt gras og skíta mikið og bera á landið í leiðinni. Svo færum við þær yfir í næsta hólf og landið þar sem þær eru búnar fær frið í næstu tvo til þrjá mánuði og þess vegna lengur og grasið fær frið til að vaxa upp aftur,“ bætir hann við.Úr lofti sjást vel hólfin sem kýrnar hafa verið í síðustu daga. Hænurnar fylgja svo í humátt á eftir.„Þetta byggist svo líka á því að