Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokksins segjast nokkuð bjartsýnir á að þingstörf klárist á morgun eins og stefnt er á. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokks, segir að mörg mál ríkisstjórnarinnar hafi komið vanbúin inn í þingið þennan þingvetur.