Allt það helsta: Sviss - Bosnía og Hersegóvína

Sviss vann að lokum 4-1 sigur en það er eiginlega ótrúleg staða miðað við gang leiksins.Manzambi kom af bekk Sviss og hleypti lífi í leikinn. Hann náði glæsilegu skoti á lofti og við það varð leikurinn allt annar. Markið kom á 76. mínútu og síðan fylgdu fjögur önnur og rautt spjald.Eftir 76 mínútur af engu fengum við 20 mínútur af öllu, en sex mörkum var bætt við.Muhamedovic fékk rautt er hann tók Embolo niður sem aftasti maður.Vargas skoraði næsta mark með góðu skoti í fjærhornið á 84. mínútu. Manzambi bætti svo þriðja marki Sviss við með skoti af stuttu færi eftir góðan undirbúning Vargas.Bosníumenn skoruðu sárabótarmark með bylmingsskoti Mahmic eftir hornspyrnu sem fór gegnum næstum því 20 manna þvögu.
Allt það helsta: Sviss - Bosnía og Hersegóvína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd