Biðlar til tónleikagesta að ganga vel um þjóðgarðinn

Tónleikarnir hefjast klukkan 11 á laugardag og standa yfir til miðnættis. Einar Á. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir undirbúning fyrir tónleikana ganga vel. Vegna umfangs tónleikanna og fjölda gesta þurfi að loka bílastæðinu við tjaldsvæðið á Þingvöllum strax á morgun, en tjaldsvæðinu hefur þegar verið lokað.Hann hvetur gesti til að koma með rútuferð á laugardaginn til að minnka álagið á bílastæði og vegakerfið. Þá hvetur hann tónleikagesti til að búa sig vel, vera vel klæddir og ganga vel um svæðið.
Biðlar til tónleikagesta að ganga vel um þjóðgarðinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd