Mótmælandinn kominn niður úr mastri Hvals í Hvalfirði

Mótmælandinn sem kom sér fyrir í mastri Hvals 9 í Reykjavíkurhöfn skömmu eftir hádegi er kominn niður úr mastrinu.Hvalur 9 lagðist að bryggju við hvalveiðistöðina í Hvalfirði á áttunda tímanum í kvöld eftir rúmlega þriggja klukkustunda siglingu frá Reykjavíkurhöfn. Mótmælandi var í masturstunnu skipsins alla leiðina.Lögreglumaður í kranabíl ræddið við manninn í rúma klukkustund áður en hann var færður niður úr mastrinu.Lögmaður mannsins, Katrín Oddsdóttir, segir það alveg skýrt að hann hafi ekki gefið leyfi fyrir því að vera skráður sem farþegi skipsins áður en það lagði úr Reykjavíkurhöfn. Það sé skýrt brot á lögum.Hún hafði ekki náð tali af skjólstæðingi sínum þegar fréttastofa ræddi við hana.
Mótmælandinn kominn niður úr mastri Hvals í Hvalfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd