Baldur fjarri í mánuð í viðbót: „Þetta er vont fyrir alla“

Það eru rétt um tvær vikur frá því Breiðafjarðarferjan Baldur sinnti síðast reglubundnum siglingum milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar. Mánudaginn 8. júní hóf Baldur að sigla til Vestmannaeyja eftir að önnur af aðalvélum í Herjólfi bilaði. Þessi ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir vestan, af sveitarfélögum, ferðaþjónustunni og fleirum. Þarna hafi tengingin yfir Breiðafjörð verið rofin með skömmum fyrirvara, bókunarstaðan hjá Baldri hafi verið afar góð, enda ferðaþjónustan að fara á fullt fyrir sumarið. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, var nýkomin af fundi með innviðaráðherra þegar Spegillinn náði tali af henni í dag.„Sveitarfélögin við Breiðafjörð hafa verið að óska eftir fundi með ráðherra alveg síðan að þessi staða kom upp núna rétt eftir mánaðamót
Baldur fjarri í mánuð í viðbót: „Þetta er vont fyrir alla“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd