Mjög mikil vinna flugstétta, lækna og framhaldsskólakennara hjá ríkinu er ástæða þess að margir í þessum stéttum eru í efstu sætum á launalista opinberra starfsmanna, segja forsvarsmenn þeirra.Rúmlega 2000 ríkisstarfsmenn fá meira en eina og hálfa milljón króna á mánuði í heildarlaun. Fjármála- og efnhagsráðherra sagði í fréttum í gær að tölurnar hafi komið honum aðeins á óvart.Nærri helmingur á listanum er heilbrigðisstarfsmenn. Þeirra efstir eru læknar á landsbyggðinni með mest rúmar sex milljónir á mánuði. VINNA MEIRA EN ÞEIR KÆRA SIG UM Jóhanna Guðrún Pálmadóttir sjúkrahúslæknir og stjórnarmaður í Læknafélagi Íslands segir að sumir læknar á landsbyggðinni sinni stóru héraði jafnvel einir á vöktum eftir að þeir eru búnir með dagvinnu:„Á bakvöktum og sinna útköllum og sinna öllu, sem