Fólkið með ungana mögulega erlendir fuglasafnarar

Fuglafræðingur sem aðstoðaði lögregluna á Austurlandi við greiningu ríflega 100 eggja sem erlent par hugðist flytja af landi brott segir litla von um að eggin myndu klekjast. Fólkið hafi líklega ætlað sér að halda fuglunum lifandi hjá sér.Lögreglan á Austurlandi handtók í síðustu viku par sem var á leið úr landi með Norrænu, með fimm lifandi hrossagauksunga og og rúmlega hundrað egg frá villtum íslenskum fuglum, sumum alfriðuðum.Eggin voru geymd í sérútbúnum hitatöskum og fundust við leit tollgæslu og lögreglu. Fuglategundirnar voru meðal annars lundi, rjúpa, heiðlóa, spói, æðarfugl, lómur, hrossagaukur, rita og önd.Hálfdán Helgi Helgason, fuglavistfræðingur hjá náttúrustofu Austurlands og náttúrufræðistofnun, var gestur í Síðdegisútvarpi Rásar tvö í dag. Hann aðstoðaði lögreglu við að gre
Fólkið með ungana mögulega erlendir fuglasafnarar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd