JD Vance: „Milljónir tonna af olíu flæða um Hormússund“

JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segir að stjórnvöld séu með Íran í efnahagslegri spennitreyju, sem verði ekki aflétt nema að Íranar breyti hegðun sinni. Milljónir tunna af olíu hafi farið um Hormússund í dag.Vance hélt blaðamannafund í Hvíta húsinu í dag þar sem hann fór yfir viljayfirlýsinguna um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran sem var undirrituð í gærkvöld. Bæði Donald Trump forseti Bandaríkjanna og leiðtogar Írans hafa sagt yfirlýsinguna vera sigur fyrir sig, en Trump hefur verið gagnrýndur töluvert fyrir að gefa of mikið eftir gagnvart Íran.Vance vísað þeirri gagnrýni á bug. Hann sagði meðal annars að 12,5 milljónir tunna af olíu hefðu farið í gegnum Hormússund frá því það var opnað auk þess sem olíuverð hefði lækkað töluvert og myndi halda áfram að lækka. ÍSRAELSMENN VERÐA A
JD Vance: „Milljónir tonna af olíu flæða um Hormússund“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd