Hvalur 9 á leið í Hvalfjörð með mótmælanda í mastrinu

Hvalur 9 er lagður úr Reykjavíkurhöfn þrátt fyrir að mótmælandi sé í mastri skipsins. Samkvæmt lögmanni var maðurinn plataður til að gefa upp kennitölu sína svo hægt yrði að skrá hann sem farþega á skipinu, gegn hans vilja. Hún segist hafa tilkynnt málið til lögreglu og Landhelgisgæslunnar.Katrín Oddsdóttir lögmaður er á Reykjavíkurhöfn og ræddi við mótmælandann í síma. Hún segir hann ekki hafa veitt leyfi fyrir því að hann yrði skráður farþegi né að skipið myndi sigla af stað. Það sé ólögmætt og þó maðurinn hafi sjálfur framið lögbrot með mótmælunum réttlæti það ekki annað lögbrot.Hún kveðst hafa áhyggjur af manninum, hann hafi lítið batterí á símanum og sé staddur úti á sjó með ókunnugum mönnum sem séu honum óvinveittir.Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Ve
Hvalur 9 á leið í Hvalfjörð með mótmælanda í mastrinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd