Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu rauf straum við auglýsingaskilti á horni Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar í dag vegna þess að það rauk úr því.Að sögn varðstjóra var einn bíll og körfubíll sendur á vettvang og sennilega aðhefst slökkviliðið ekki meira að svo stöddu. Hann telur að mögulega hafi steini verið kastað í skiltið sem hafi valdið hitamyndun en ekki er hægt segja til um það fyrir víst.RÚV / Erla María Davíðsdóttir