Þingmenn róa til stuðnings fótboltalandsliðinu

Á þingfundi í norska stórþinginu í dag hvatti Masud Gharahkhani forseti þingsins til þess að þingmenn sendu góða strauma til karlalandsliðsins í knattspyrnu, sem etur þessa dagana kappi á HM í fótbolta.Eftir góða leiðsögn um hvernig ætti að vera samtaka í hvatningunni tóku þingmennirnir róðurinn, sem hefur verið einkenni stuðningsmanna landsliðsins, með taktföstum hætti. Þessum hvatningarróðri svipar til víkingaklappsins sem stuðningsmenn íslenska liðsins hafa notað árum saman.
Þingmenn róa til stuðnings fótboltalandsliðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd