Erlent par var handtekið á Seyðisfirði á fimmtudag eftir að ríflega hundrað egg villtra íslenskra fuglategunda og fimm lifandi hrossagauksungar fundust í bifreið þeirra. Parið var á leið úr landi með Norrænu.Parið var yfirheyrt samdægurs og búnaður þeirra haldlagður. Í gær var þeim birt sektargerð sem þau samþykktu og greiddu.Lögreglan á Austurlandi greinir frá atvikinu í færslu sinni á Facebook.