Mótmælir í mastri Hvals 9 sem siglir upp í Hvalfjörð

Landfestar Hvals 9 hafa verið leystar þrátt fyrir að mótmælandi sé í mastri skipsins. Til stendur að skipið sigli úr Reykjavíkurhöfn í Hvalfjörð, að sögn sjónarvotta á staðnum sem fréttastofa ræddi við.Benedikt Erlingsson leikari átti leið hjá bryggunni fyrir tilviljun. Hann segir mótmælandann ekki hafa samþykkt að fara með skipinu upp í Hvalfjörð og segir að skemmst sé að minnast síðustu mótmæla í hvalveiðibátum Hvals hf. þegar fyllsta öryggis var gætt í hvívetna og skipin hafi ekki mátt fara af stað á meðan mótmælendurnir voru uppi í mastrinu.Hann segir að lögreglu hafi verið tilkynnt um málið.Í tilkynningu frá Hvalavinum frá því fyrr í dag segir að mótmælin séu ekki á þeirra vegum.Fréttin verður uppfærð.
Mótmælir í mastri Hvals 9 sem siglir upp í Hvalfjörð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd